Miðvikudagur, 18. mars 2009
Miðhús - sumarhús til leigu
Glæsilegt nýuppgert hús til leigu á jörðinni Miðhúsum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Húsið, sem heitir Nonnahús, er í 38 km fjarlægð frá Selfossi.
Húsið er leigt með öllum húsgögnum og húsbúnaði. Stór og góður sólpallur er við húsið með heitum potti.
Nonnahús stendur undir Miðhúsafjalli og þaðan er útsýni mjög mikið. Til austurs má t.d. sjá Heklu, Tindfjöll og Eyjafjallajökul og til suðurs sést Árnesið. Þjórsá, rennur neðan til við húsið en þar er lax og silungsveiði.
Stutt er í ýmsa þjónustu. Sundlaug, félagsheimili, verslun og bensínstöð er í byggðakjarnanum Árnesi sem er aðeins í 4,3 km fjarlægð. Fleiri sundlaugar eru í nágrenninu s.s. Skeiðalaug í Brautarholti, Flúðalaug á Flúðum og síðast en ekki síst Þjórsárdalslaug í Þjórsárdal sem er reyndar aðeins opin yfir sumarmánuðina.
Nú þegar er búið að leigja húsið frá 12. júní - 21. ágúst. Að öðru leyti eru lausar leiguvikur og í haust er möguleiki á að leigja húsið ásamt veiði. Á haustin veiðist mikið af laxi og sjóbirtingi þarna hjá okkur á mjög fallegum veiðistað. Draumastaður veiðimannsins.
Skoðið endilega heimasíðuna okkar; http://800.is/nonnahus
Nánari upplýsingar gefur Sjöfn Marvinsdóttir í síma 849 2930 og Hilmar Björgvinsson í síma 863 0463 og eins má senda fyrirspurnir i gegnum heimasíðu hússins.
Sunnudagur, 14. desember 2008
Stóra stelpan mín er komin heim
Dröfn kom í nótt heim úr heimsreisu sinni. Dagur og Hjördís sóttu hana út á flugvöll. Hún er búin að vera á flækingi síðan í júní og því kærkomið að fá hana aftur. Í tilefni þess að týnda dóttirin er komin var lambi slátrað, sett í reykkofann og verður snætt í kvöld.
Ástrós vissi ekki af komu systur sinnar. Enda var hún búin að biðja um að það ætti að koma sér á óvart þegar hún kæmi. Það gerði það svo sannalega.
Þegar Dröfn kom um 1 leytið læddist hún inn til systur sinnar, fór á hnén við rúmgaflinn hjá henni þar sem hún steinsvaf. Reyndi að vekja hana. Eftir dágóða stund rumskaði hún , opnaði augun, leit á Dröfn, snéri sér frá henni, rótaði eitthvað í koddanum sínum, settist síðan upp, gapti undrandi í dágóða stund og leit svo aftur á systur sína. Þá var eins og hún væri búin að átta sig á hlutunum og almennilega vöknuð og knúsaði þá systur sína brosandi út að eyrum.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 12. nóvember 2008
Lék í Hollywoodmynd, þaðan í Alkatraz fangelsið og slapp til Vegas
Hún var í Hollywood.
.... og lék í einni mynd með einhverjum George Clooney.
Eftir það lenti hún í Alkatraz fangelsinu.
Sem betur fer slapp hún þaðan eftir stutta dvöl enda hörð í horn að taka. Það sem réð úrslitum að dvelja ekki of lengi í Alkatraz var slæmur aðbúnaður. Sjáið bara salernin. Af hverju er ekki búið að endurnýja þau?
Hér sést hún yfirgefa einn fangavörðinn og síðan lá þá leiðin til Vegas.
Spilavíti og skemmtistaðir.
En hún sagði nei takk enda ekki orðin 21 árs.
Laugardagur, 8. nóvember 2008
Skjaldbökusund
Þegar Dröfn og Rebekka voru á Samóa eyjum var ýmislegt brallað. Hér fyrir neðan má t.d. sjá Dröfn synda með skaldböku eða var það skjaldbaka sem var að synda með Dröfn?
Þetta er engin smá skjaldbaka.
Og hér má sjá veiðimenn frá Samoa eyjum róa. Þetta eru engir frystitogarar.
Annar er allt gott að frétta af Dröfn. Þær Rebekka fóru frá Samoa til Los Angeles og kom Rebekka til Íslands fyrir um þremur dögum. Núna er Dröfn ein á ferðalagi og var í San Francisco þegar ég heyrði í henni í fyrradag.
Þriðjudagur, 21. október 2008
Þegar kinnarnar fuku af
Þessa dagana er Dröfn á Samoa eyjum ásamt Rebekku vinkonu sinni.
Hér svífur hún til jarðar á Nýja Sjálandi. Gott að komast niður á jörðina.
Hér sést hvernig á að æfa sig fyrir fallhlífarstökk. Ég er ekki viss um að ég gæti náð þessum æfingum. Þær eru greinilega mjög flóknar.
Þriðjudagur, 14. október 2008
Ég fór í fallhlífarstökk
á Nýja Sjálandi í fyrradag.
Getur það annars verið?
Var mig að dreyma?
Var þetta ímyndun?
Nei ekkert af þessu.
Það var hún Dröfn mín sem var svona hugrökk. Hér sést hún svífa til jarðar ásamt kennaranum.
"Það tók næstum 20 mínútur að fljúga upp í 12.000 feta hæð og ég naut útsýnisins á meðan. Fannst við fara rosa hátt upp. Ég var furðulega lítið stressuð. ...
...Svo voru þeir komnir út og ég hélt í axlarböndin og horfði niður...langt niður...í gegnum skýin og á landslagið fyrir neðan. Hafði engan tíma til að hugsa neitt mikið en þetta var mjög brjálað. Allt í einu vorum við komin út úr vélinni og ég hallaði höfði og lyfti mjöðmum og við snerumst í hring aftur á bak.... Ég var ja..mjög hissa ..frekar æst... skildi hvorki upp né niður. .... mér leið eins og kinnarnar væru að fjúka af andlitinu...."
Ef ég væri á Drafnar aldri gæti ég alveg hugsað mér að gera svona... eða hugsað um það... ekki lengur. Frásögn hennar er á www.dh.is
Vinir og fjölskylda | Breytt 21.10.2008 kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 12. október 2008
Laxveiði í Þjórsá
Við Sjöfn fórum upp í sveit í gær. Það var alveg frábært veður og það er óhætt að segja að Miðhús í Gnúpverjahreppi er fallegasti staður á landinu.
Veiðin í Þjórsá var með ágætum þetta árið. Hún verður það örugglega áfram þar til Landsvirkjun eyðileggur ána með virkjunum sínum í neðri hluta Þjórsár. Að sjálfsögðu á ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar að hætta við þessar framkvæmdir. Er ekki kominn tími til að hlusta á aðvörunarorð fólks gagnvart vikjunaráformum og einkavæðingarstefnu ríkisstjórnarinnar.
Síðasta dag veiðitímabilsins drógum við þrjá sjóbirtinga á land 2 - 4 punda og einn stóran lax. Sjöfn fékk 14 punda hæng á spún sem var 91 cm langur. Ótrúlegt flykki sem tók aðeins 10 mínútur hjá henni að landa.
Tveir gapandi.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 4. október 2008
Heimsflakk Drafnar
Dröfn er í Nýja Sjálandi og hefur það bara gott. Þær Rebekka flakka um og voru síðast í Wellington en eru nú búnar að flytja sig norðar. Eru líklegast einhvers staðar á miðri norðureyjunni. Þær eru nú Sörulausar því hún Sara er farin til Fiji eyja. Þar hafa þær misst góðan ferðafélaga.
Þessa mynd tók ég af heimsíðunni hennar Drafnar http://www.dh.is . Ég reikna með að hún hafi tekið þessa mynd. Hér sést yfir hafið frá suðureyjunni og þarna sigla skip sem koma frá Wellington sem er syðst á norðureyjunni.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 4. október 2008
Skotland
Í síðustu viku vorum við Sjöfn í Skotlandi. Ég fór á ráðstefnu í Glasgow með Skólastjórafélagi Suðurlands og leikskólastjórum. Ráðstefnan heitir: Schottish learning festival og var þetta 9 árið sem hún var haldin. Ýmsir fyrirlestrar voru í boði um skólamál og eins var þarna mjög stór kennslutækja- og námsefnissýning. Um 6000 manns úr skólageiranum sótti þessa ráðstefnu.
Hér var ráðstefnan haldin.
Við Sjöfn skruppum til Edinborgar einn daginn. Þessi borg er mjög falleg, mun fallegri en Glasgow.
Einnig fórum við til Oban sem er lítill sjávarbær á vesturströndinni. Mjög fallegur bær eins og sést á myndinni.
Hér erum við á Glasgow á Rauða torginu. Þetta fólk fyrir aftan okkur elti okkur út um allt. Veit ekki af hverju.
Lúnir ferðafélagar á flugvellinum í Glasgow á leið heim í rigninguna.
Þriðjudagur, 16. september 2008
Klukk
Dröfn klukkaði mig. Þar sem hún sagðist vera alveg viss um að ég myndi ekki svara klukkinu þá læt ég verða að því. Líklegast þekkir hún mig það vel að hún veit hvaða aðferð dugar á mig.
1. Fjögur störf sem ég hef unnið:
Öskukall - Reykjavíkurborg
Bankastarfsmaður - Landsbankinn í Austurstræti í Reykjavík
Sjómaður - Hafskip
Fiskvinnsla - Bolungarvík og Vestmannaeyjar
2.Fjórar bíómyndir sem ég held uppá:
Englar alheimsins 2000 - Friðrik Þór Friðriksson/Einar Már Guðmundsson
Moulin Rouge 2001 - Með Nicole Kidman o.fl.
Gaukshreiðrið (One Flew Over the Cuckoo's Nest ) 1975 - Með Jack Nicholson
Forrest Gump 1994 - Með Tom Hanks
3.Fjórir staðir sem ég hef átt heima á:
Tunguvegi Reykjavík
Háaleitisbraut Reykjavik
Lier Noregi
Austurvegi Selfossi
4.Fjórir sjónvarpsþættir sem ég horfi helst á:
Fréttir
Kastljós
Fréttir
Kastljós
5.Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Portugal 1984 - Cascais
Hornstrandir 2001
Spánn 2006 - Calpé
Bandaríkin 2007 - Boston
6. Fjórar síður sem ég heimsæki daglega (reglulega):
dh.is
mbl.is
sara.is
gudmundsson.blog.is
7. Fjórir réttir sem mér finnst góðir:
Kjúklingarétturinn hennar Sjafnar
Steikti fiskurinn hennar Sjafnar sem ég borðaði í kvöld
Poppkornið mitt sem ég borða oft
Laugardagsnammið
8.Fjórar bækur sem ég les amk. árlega:
Les engar bækur árlega
Er að lesa bókina; Áður en ég dey eftir Jenny Dovnham
Það sem ég les amk. árlega er Fréttablaðið, Blaðið, Dagskráin og Glugginn
Ég klukka Huldu mömmu hennar Önnu Guðrúnar vinkonu Ástrósar, http://natturbarn.blog.is/blog/natturbarn/
ég klukka Júlíu hennar Ellu og Rúnars bróður; http://juliabirgis.bloggar.is/
og ég klukka Gylfa vin minn á Ísafirði; http://gylfigisla.blog.is/
Hann hlýtur að vita hvað er að klukka þó að hann sé orðinn gamall. Gylfi ef þú ert ekki með á nótunum þá þýðir þetta að þú átt að afrita spurningarnar hér fyrir ofan, fylla inn í og setja á heimasíðuna þína.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 14. september 2008
Frá Ástralíu til Nýja Sjálands
Dröfn er ennþá í Ástralíu og er núna í Melbourne með Söru.
Þær fljúga þann 18. september til Christchurch i Nýja Sjálandi. Þar ætlar Rebekka vinkona Drafnar að hitta þær. Sjá http://rebekkak.bloggar.is/
Stelpurnar fá gistingu norðarlega á suðureyjunni hjá kunningjafólki Steingríms en hann var skiptinemi á Nýja Sjálandi fyrir nokkrum árum. Þær verða á stað sem heitir Golden Bay og þar var hluti Hringadrottinssögu tekin upp.
Fylgist með ferðalagi þeirra.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 7. september 2008
Ástrós í 3. sæti
´
Ástrós stóð sig vel i Brúarhlaupinu í gær. Hljóp 5 km og lenti í 3. sæti á tímanum 25:46.
http://www.hlaup.is/displayer.asp?cat_id=563&module_id=220&element_id=21548&nl=true
Mánudagur, 1. september 2008
Brúarhlaupið á laugardaginn
Við Ástrós ætlum að hlaupa á laugardaginn í Brúarhlaupinu á Selfossi. Við hlupum í Reykjavíkurmaraþoninu um daginn og við komumst bæði í mark. Ætlar þú að hlaupa?
Vinir og fjölskylda | Breytt 8.9.2008 kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 31. ágúst 2008
34 klukkustunda afmælisdagur
Hún Dröfn mín á afmæli í dag. Hún heldur upp á 19 ára afmælið sitt í Ástralíu.
Þetta verður einn lengsti afmælisdagur hennar til þessa. Ástæðan er sú að það er 10 klukkustunda mismunur á tímanum á Íslandi og í Ástralíu þar sem hún er. Hún byrjaði sem sagt að halda upp á afmælið sitt í gær 30. ágúst kl. 14:00 en þá var kl. 12 á miðnætti í Ástralíu og kominn 31. ágúst þar.
Síðan getur hún haldið upp á það til kl. 10:00 í fyrramálið samkvæmt tímanum í Ástralíu en þá er komið miðnætti hér hjá okkur á Íslandi.
Annars er allt gott að frétta af henni og Söru vinkonu hennar. Þær eru í fylkinu Victoria sem er syðst í Ástralíu. Þær eru í úthverfi Melbourne sem heitir Sunbury þar sem móðurbróður Söru býr. Sjá nánar á heimasíðunni Drafnar; http://www.dh.is
Til hamingju með afmælið elsku Dröfn
Ástarkveðjur frá okkur öllum
Dröfn bregður á leik í Melbourne.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 24. ágúst 2008
Glæsilegur árangur
Ég er stoltur af íslenska landsliðinu í handbolta. Ótrúlegur árangur sem seint mun gleymast.
Ekki átti ég von á því áður en keppnin hófst að Íslendingar kæmust svona langt í handboltanum. Strákarnir voru ótrúlega góðir. Glæsilegur árangur að fá silfurverðlaunin.
Til hamingju strákar - til hamingju Ísland.
Íslendingar taka við silfrinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |