Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Meirihlutinn fallinn

bilde

 

 

 

 

 

 

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun, sem Capacent gerði fyrir Stöð 2, er meirihlutinn í Reykjavík kolfallinn. Það kemur ekki á óvart því annar eins meirihluti hefur aldrei nokkurn tíma verið við völd í Reykjavík. Mikið er ég feginn að búa ekki í Reykjavík um þessar mundir.

Nú bíður maður bara eftir nýjum kosningum og vonar að  Vinstri græn og Samfylkingin myndi meirihluta eftir þær kosningar.


mbl.is Tæp 2% borgarbúa kysu F-lista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hekla

Hekla

Hér sést Kirkjuholtið í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem tilheyrir Miðhúsum. Hekla í baksýn.


Sannur listamaður

Björk á tónleikum utan við óperuhúsið í Sydney á miðvikudag.

Þegar maður skoðar fréttir hér á Morgunblaðsvefnum sér maður að lítið er bloggað um listir og menningu. Samt sem áður er menningin mikilvægur þáttur í samfélaginu okkar og alls staðar úti í hinum stóra heimi.

Þeir sem blogga ættu að vera miklu duglegri að blogga um jákvæða hluti í samfélaginu í stað þess að einblína of mikið á það sem miður fer dags daglega. Ég er þar ekkert undanskilinn.

Björk hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér. Þar fer listakona sem þorir og býr til tónlist sem hana langar til að gera. Hún fer sínar eigin leiðir og er með tónlistarstíl sem er engum líkur.  Það verður gaman að fylgjast með henni áfram.


mbl.is Björk mun syngja á mánudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snillingurinn hann Erró

Erró, Endurfæðing Nazismans.

Erró er snillingur. Ef ég byggi í Reykjavík færi ég að ná mér í bók og grafíkverk eftir listamanninn. Það verður örugglega margt um manninn í Lisasafni Reykjavíkur kl. 14:00 á laugardaginn.


mbl.is Erró áritar bækur og plaköt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gifting í Tungudal

Við Sjöfn fórum í giftingu til Ísafjarðar laugardaginn 23. júní. Það voru vinir okkar Gylfi og Sóley sem létu pússa sig saman í Tungudal í frábæru veðri. Í framhaldinu gengum við að golfskálanum þar sem mikil veisla var haldin. Frábær dagur.

Verndum Þjórsá

Ég skoðaði fyrirhugað virkjunarsvæði stjórnvalda í Þjórsá um helgina. Það er slys í uppsiglingu ef af þessu verður. Það verður fróðlegt að sjá hvort Samfylkingin spyrni við fótum eða taki þátt í stóriðjubrölti og áframhaldandi náttúruspjöllum fyrrverandi ríkisstjórnar. 

Við fórum nokkur á sunnudaginn í heimboð í sumarbústaðinn Fagradal í landi Haga  þar sem Landsvirkjun stefnir að því að sökkva náttúruperlum, flúðum,eyjum, klettum, og grónu landi. Hjónin Guðbjörg Friðriksdóttir og Sigurður L. Einarsson tóku vel á móti okkur og miklum fjölda gesta yfir daginn.


Magnað safn

422768B

Louvre safnið í París er eitt merkilegasta listasafn sem ég hef heimsótt. Eyddi þar góðum hluta úr degi í fyrrahaust með því að  skoða það á hlaupum. Þetta er það stórt safn að maður þarf að heimsækja það oft. Kíki örugglega aftur á það í maí. Safn sem allir verða að heimsækja sem fara til Parísar.

Mér þykir miður að flytja eigi hluta af því úr landi. Slæmt fyrir París en gott fyrir Abu Dhabi.


mbl.is Louvre opnar útibú í Abu Dhabi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álfa og tröllasafn á Stokkseyri

 

 421421A

Draugasafnshöfðingjarnir með Benedikt Guðmundsson í broddi fylkingar eiga heiður skilinn fyrir frábært framtak. Það er dýrmætt fyrir sveitarfélag eins og Árborg að eiga svona framtaksamt fólk sem lætur verkin tala. Menningarverstöðin á Stokkseyri er orðið eitt merkilegasta menningarhús landsins.

Álfa og tröllasafnið er góð viðbót við Draugasafnið og öll hin söfnin á Eyrarbakka og Stokkseyri.

Til hamingju!

 


mbl.is Álfa- og tröllasafn opnað á Stokkseyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannkölluð hetja

Egill Vagn ásamt fjölskyldu sinni er hann tók við...

Hann Egill er sannkölluð hetja. Gaman þegar börnum eru veittar viðurkenningar fyrir afrek sín. Átta ára drengur stendur sig ótrúlega vel í aðstæðum sem margir fullorðnir hefðu átt erfitt með að höndla. Þetta sýnir okkur mikilvægi þess að hafa forvarnir í lagi og nauðsyn þess að þjálfa alla í skyndihjálp. Í svona aðstæðum skipta mínútur öllu máli. Til hamingju Egill!


mbl.is Átta ára drengur hlaut viðurkenningu sem Skyndihjálparmaður ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríð og ofbeldi einkennir World Press Photo

Ljósmynd ársins, verk Spencer Platt.Ég er áhugamaður um ljósmyndun og hef verið lengi. Ljósmyndirnar í World Press Photo eru oftast nær mjög magnaðar.

Það sem einkennir myndirnar er stríð og ofbeldi. Veruleiki sem við búum við enda eru þetta fréttaljósmyndir.

Í ár er engin undantekning þar á. Verðlaunamyndin er af ungum Líbönum í glansandi blæjubíl í bíltúr um sundurtætt hverfi í Beirút. Miklar andstæður.

Meira að segja íþróttaljósmynd ársins þarf að tengjast ofbeldi. Myndin sýnir fótboltahetjuna Zidane skalla  Ítalann Marco Materazzi í bringuna. Gátu þeir nú ekki valið íþróttamannslegri mynd? Er þetta nú hinn sanni íþróttaandi?


mbl.is Ljósmynd ársins tekin í Beirút
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband