Sunnudagur, 31. ágúst 2008
34 klukkustunda afmælisdagur
Hún Dröfn mín á afmæli í dag. Hún heldur upp á 19 ára afmælið sitt í Ástralíu.
Þetta verður einn lengsti afmælisdagur hennar til þessa. Ástæðan er sú að það er 10 klukkustunda mismunur á tímanum á Íslandi og í Ástralíu þar sem hún er. Hún byrjaði sem sagt að halda upp á afmælið sitt í gær 30. ágúst kl. 14:00 en þá var kl. 12 á miðnætti í Ástralíu og kominn 31. ágúst þar.
Síðan getur hún haldið upp á það til kl. 10:00 í fyrramálið samkvæmt tímanum í Ástralíu en þá er komið miðnætti hér hjá okkur á Íslandi.
Annars er allt gott að frétta af henni og Söru vinkonu hennar. Þær eru í fylkinu Victoria sem er syðst í Ástralíu. Þær eru í úthverfi Melbourne sem heitir Sunbury þar sem móðurbróður Söru býr. Sjá nánar á heimasíðunni Drafnar; http://www.dh.is
Til hamingju með afmælið elsku Dröfn
Ástarkveðjur frá okkur öllum
Dröfn bregður á leik í Melbourne.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:11 | Facebook
Athugasemdir
Elsku Dröfn!
Við amma sendum þér hjartanlegar afmæliskveðjur í tilefni af 19 ára afmælinu og vonum að ferðin gangi vel.
Afi og amma
Björgvin Guðmundsson, 31.8.2008 kl. 10:29
Heilt afmaelisblogg handa mer! Aedislegt, takk kaerlega! Hefdir samt getad valid betri mynd;)
Tusund takkir fyrir afmaeliskvedjuna amma og afi.
Drofn (IP-tala skráð) 31.8.2008 kl. 11:05
Það eru allar myndir fínar af þér Dröfn. Sá rétt í þessu skemmtilega mynd á heimasíðunni þinni sem ég leyfði mér að setja hér inn á síðuna. Kv. pabbi
Hilmar Björgvinsson, 31.8.2008 kl. 12:16
Elsku Dröfn!
Við Pirjo sendum þér hjartanlegar hamingjuóskir með 19 ára afmælið.
Við óskum ykkur vinkonunum gæfu og farsældar í heimsreisunni ykkar.
Kær kveðja frá Finnlandi, Björgvin og Pirjo
Björgvin Björgvinsson, 31.8.2008 kl. 17:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.